Excel, tímastjórnun, verkættir, viðburðastjórnun, áætlanagerð
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í áfanganum þjálfast nemendur í því að taka að sér verkefnastjórnun á vinnustað. Farið er yfir viðfangsefni mismunandi stjórnenda og skyldur og ábyrgð þeirra. Nemendur þjálfast í því að taka stjórn, eiga í samskiptum við ólíkt starfsfólk, móta stefnu og setja upp skipulag sem tekur tillit til þeirra þátta sem hafa áhrif á starfið.
Þekkingarviðmið
- verkefnastjórnun
- viðfangsefnum mismunandi stjórnenda á vinnustað
- skyldum og ábyrgð stjórnenda
Leikniviðmið
- sinna starfi jafningjastjórnanda eða millistjórnanda
- eiga í skilvirkum samskiptum við starfsfólk með ólíkan bakgrunn
- móta stefnu og setja upp skipulag sem styður við þá stefnu
Hæfnisviðmið
- sinna starfi jafningjastjórnanda eða millistjórnanda farsællega
- sinna skyldum og axla ábyrgð þess starfs sem honum er fólgið
- eiga í árangursríkum samskiptum við starfsfólk með ólíkan bakgrunn
Nánari upplýsingar á námskrá.is