HAGF2FL05 - Fjármálalæsi

Fjármál og fjármálalæsi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Í áfanganum er farið á aðgengilegan hátt yfir helstu hugtök í hagfræði, hvernig þau eru notuð og jafnframt komið inn á sögulegt samhengi hagfræðikenninga. Nemendum er gert kleift að átta sig á virkni hagkerfa og öðlast skilning á þeim hugtökum sem heyrast daglega í þjóðmálaumræðunni. sem er nauðsynleg forsenda allra ákvarðana um fjárfestingar, stórar eða smáar, að þeir geri sér grein fyrir þeim kröftum sem eru að verki í hagkerfinu og hafa áhrif á efnahag og aðstæður okkar allra Sjálfræði og fjárræði við 18 ára aldur gerir kröfu til aukinnar ábyrgðar ungs fólks á eigin fjármálum. Lögráða einstaklingar þurfa að læra að verða virkir þátttakendur í þjóðfélagi með gagnvirkri samfélagslegri ábyrgð og hafi skilning, öryggi og yfirvegun til að takast á við algeng fjármálatengd viðfangsefni sem þeir þurfa að fást við í samfélaginu. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og að nemendur taki ábyrgð á því að skipuleggja vinnu sína og læri að nýta sér þau hjálpartæki sem í boði eru.

Þekkingarviðmið

  • útgjöldum sínum til að átta sig á almennri eyðslu
  • gildum sínum og mikilvægi markmiðasetningar í fjármálum
  • hugtökum sem tengjast fjármálalæsi og hagfræði

Leikniviðmið

  • finna leiðir til að öðlast yfirsýn á útgjöldum og tekjum
  • setja sér markmið í eigin fjármálum
  • nota hugtök sem tengjast fjármálalæsi og hagfræði

Hæfnisviðmið

  • skipuleggja fjármál sín á hagkvæman hátt
  • finna hvaða gildi eru mikilvæg og hvernig best er að lifa eftir þeim
  • taka þátt í umræðum um málefni tengd efninu
Nánari upplýsingar á námskrá.is