glæpasögur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: A.m.k. 10 einingar í íslensku á 2. þrepi
Í áfanganum kynnast nemendur sögu og þróun glæpasagnaritunar. Nemendur kynnast nokkrum íslenskum glæpasagnahöfundum, lesa og meta verk þeirra, auk þess að kynna sér erlenda höfunda og þýddar glæpasögur.
Þekkingarviðmið
- á formi og einkennum bókmenntategundarinnar
- sögu og þróun glæpasagnaritunar, skoði stöðu hennar innan bókmenntanna og tengsl við aðra miðla, t.d. bíómyndir og sjónvarp
- verkum nokkurra íslenskra og erlendra glæpasagnahöfunda
Leikniviðmið
- beita helstu hugtökum bókmenntafræðinnar í umfjöllun um form og einkenni glæpasögunnar
- lesa og fjalla um glæpasögur á gagnrýninn og fræðilegan hátt
- flytja af öryggi vel byggða kynningu á bókmenntalegu viðfangsefni
Hæfnisviðmið
- átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum
- tjá rökstudda afstöðu og taka þátt í málefnalegri umræðu um bókmenntir
- sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum
Nánari upplýsingar á námskrá.is