Lýsandi heiti áfanga: Lýðheilsa: verklegt
Framhaldsskólaeiningar: 3
Undanfari: A.m.k. 10 einingar í lýðheilsu á 1. þrepi
Lýsing á efni áfangans:
Áfanginn er að mestu verklegur og eru þrjár kennslustundir á viku.
Nemendur kynnast fjölbreyttum íþróttagreinum og fjölbreyttu hreyfingarformi.
Eigin þjálfun í náttúrunni, íþróttasal eða sundlaug þar sem nemendur gera æfingaáætlanir og þjálfa
eftir þeim.
Eigin þjálfun í þreksal þar sem nemendur gera æfingaáætlanir og þjálfa eftir þeim.
Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- Áætlunargerð til skemmri og lengri tíma
- Mikilvægi hreyfingar í hinu daglega lífi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Útbúa áætlun út frá markmiðum hvers og eins
- Framkvæma áætlunina eins og hún er sett upp
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Útbúa skipulagða áætlun út frá eigin markmiðum sem stuðla að heilbrigðara líferni
Námsmat:
Áfanginn er eingöngu verklegur áfangi og þurfa nemendur að standast mætingarkröfur áfangans.
Birt með fyrirvara um breytingar