Lýsandi heiti áfanga: Lýðheilsa: Verklegt
Framhaldsskólaeiningar: 2
Undanfari: LÝÐ1A03 og LÝÐ1B02
Lýsing á efni áfangans:
Áfanginn er að mestu verklegur og eru tvær kennslustundir á viku.
Nemendur kynnast fjölbreyttum íþróttagreinum og fjölbreyttu hreyfingarformi.
Eigin þjálfun þar sem nemendur gera æfingaáætlanir og þjálfa eftir þeim.
Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- uppbyggingu hreyfingarlotu með góðri upphitun, fjölbreyttri þjálfun og skynsamlegu niðurlagi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leysa eigin hreyfingu á skipulagðan hátt (upphitun, aðalhluti og niðurlag)
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- bera ábyrgð á skipulagi og framkvæmd eigin hreyfingar í kennslustundum
Námsmat:
Áfanginn er eingöngu verklegur áfangi og þurfa nemendur að standast mætingarkröfur áfangans til að standast hann. Áfanginn er metinn:
Lokið/Ólokið.
Birt með fyrirvara um breytingar