Fréttir

Starfsfólkið stóð sig vel í Lífshlaupinu

Menntaskólinn á Tröllaskaga er Heilsueflandi framhaldsskóli og hefur sett sér metnaðarfulla heilsu- og forvarnarstefnu sem miðar að því að bæta heilsu og líðan allra þeirra sem starfa og nema við skólann. Lögð er áhersla á heilbrigða lífshætti sem leiða til sjálfsvirðingar, sjálfsstjórnar og jákvæðrar lífsýnar og að hvetja nemendur og starfsfólk til virkrar þátttöku. Undanfarin ár hefur starfsfólk skólans tekið þátt í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins, heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, og er það liður í að auka daglega hreyfingu þeirra sem starfa við skólann. Í Lífshlaupinu eru landsmenn allir hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Vinnustaðakeppnin stóð í þrjár vikur, frá 7. - 27. febrúar, og var MTR í flokki vinnustaða með 10 - 29 starfsmenn. Starfsmannahópurinn hefur smám saman fikrað sig upp á við milli ára og endaði nú í 44. sæti af um 140 vinnustöðum sem tóku þátt í þessum flokki. Þátttökuhlutfall innan skólans var 63% og fer vaxandi. Starfsfólk MTR stundar greinilega fjölbreytta hreyfingu því alls voru um 30 tegundir hreyfingar skráðar. Ganga var mest stunduð, síðan komu skíðin, þá sund og síðan líkamsrækt, crossfit og yoga.
Lesa meira

Mannrækt í miðannarviku

Á miðri önn er skólastarf brotið upp, kennarar sinna námsmati og staðnemar sitja tveggja eininga áfanga, fjarnemum stendur það einnig til boða ef þeir hafa tök á. Leitast er við að hafa þessa áfanga fjölbreytta og þykir nemendum ekki verra ef hreyfing kemur við sögu. Að þessu sinni er boðið upp á áfanga sem kallast Heilsa og markþjálfun og sjá þær nöfnur Sólveig Anna Brynjudóttir, einkaþjálfari, og Sólveig Helgadóttir, markþjálfi, um kennslu auk þess sem Snjólaug Kristinsdóttir kynnir nemendum Tabata yoga og Diljá Helgadóttir yin yoga. Markmið áfangans er að efla og styrkja vitund þátttakenda á alhliða heilsusamlegu líferni og gera sér grein fyrir eigin ábyrgð í þeim efnum. Áfanganum er skipt í fyrirlestra og verklegar æfingar og hafa nemendur verið mjög áhugasamir og tekið virkan þátt. Vel var tekið á því í crossfit, útivera hefur verið stunduð af kappi og svo slakað á í sundi. Nemendur hafa einnig skoðað sína styrkleika, lært hvernig á að setja sér markmið og hvernig á að vinna að þeim auk þess sem mataræði hefur verið skoðað.
Lesa meira

Námsferð til Lanzarote

Þrír kennarar frá MTR tóku þátt í námskeiði á Lanzarote, austustu eyju Kanaríeyja, í síðustu viku. Námskeiðið kallaðist ART AND NATURE FACING THE CHALLENGE OF SUSTAINABILITY, sem mætti þýða sem Listir og náttúra mæta áskorun um sjálfbærni. Námskeiðið var sérstaklega hannað handa hópi kennara úr fjórum framhaldsskólum á Íslandi: FB, FSN, MTR og Verzló og styrkt af Erasmus+ áætluninni. Endurmenntunarstofnun kennara á Lanzarote, CEP, sá um skipulagningu þess og naut íslenski hópurinn sérstakrar gestrisni fulltrúa þeirra sem og sveitarfélags svæðisins.
Lesa meira

Menntaskólinn á Tröllaskaga er Fyrirmyndarstofnun

Í gær tilkynnti Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu um valið á Stofnun ársins 2023 en titlana Stofnun ársins og Fyrirmyndarstofnun hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr að mati starfsfólks á sviði mannauðsmála. Ár frá ári hefur þátttaka í könnuninni aukist og aldrei hefur verið betri þátttaka í Stofnun ársins en nú. Í ár tóku nærri 17.000 þátt í könnuninni sem var framkvæmd í október og nóvember 2023.
Lesa meira

Ýmsar verur á ferli á öskudaginn

Samkvæmt venju var líf og fjör í skólanum á öskudaginn. Margir mættu í grímubúningum og gaf starfsfólk nemendum ekkert eftir í því efni eins og sjá má á myndunum sem fylgja fréttinni. Nemendafélagið var með búningakeppni og átti úr vöndu að ráða þegar kom að vali skemmtilegustu búninganna. Niðurstaðan varð sú að aðstoðarskólameistarinn “Gyða Sól” og Addi hinn skoski þóttu bera af. Fjöldi yngri barna kom í skólann og tók lagið fyrir viðstadda. Var lagaúrvalið fjölbreytt; allt frá Gamla Nóa til þjóðsöngsins og fengu öll harðfisk að launum. Teknar voru myndir af öllum sönghópunum og fylgja þær hér með.
Lesa meira

539 nemendur við skólann á vorönn

Á þessari önn eru 539 nemendur við skólann og hafa sjaldan verið fleiri. Stærstur hluti þeirra stundar fjarnám við skólann, eru fjarnemarnir búsettir víðsvegar um landið og nokkrir erlendis. Kjörnámsbraut er fjölmennasta brautin, með um 250 nemendur, en þar velja nemendur þá sérhæfingu sem þeir vilja leggja áherslu á og skipuleggja námið í samráði við námsráðgjafa. Næst fjölmennust er félags- og hugvísindabrautin, með 170 nemendur. Starfsfólk skólans telur tæplega 30 manns og er það sami fjöldi og síðustu ár.
Lesa meira

Nemendur 10. bekkjar í tröllahöndum

Í síðustu viku bauð nemendafélagið Trölli nemendum 10. bekkjar Grunnskóla Fjallabyggðar til skemmtikvölds í skólanum með það að markmiði að þjappa þessum tveimur hópum betur saman. Heilasellurnar voru virkjaðar í spurningakeppnum, bragðlaukarnir gladdir með pizzahlaðborði og svo var spjallað og hlegið. Vel tókst til og mæting góð.
Lesa meira

Elfa Sif hjúkrunarfræðingur

Elfa Sif Kristjánsdóttir er frá Siglufirði. Hún útskrifaðist af félags- og hugvísindabraut MTR vorið 2015. Skömmu síðar hóf hún nám í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Elfa býr í dag í Ólafsfirði og starfar sem hjúkrunarfræðingur á heilsugæslunni í Fjallabyggð. Við spurðum Elfu hvernig námið í MTR hafi undirbúið hana fyrir háskólanámið og hvað sé eftirminnilegast frá skólagöngunni.
Lesa meira

Listamaður mánaðarins - Kristján Jóhannsson

Ný sýning hefur nú verið sett upp í sal skólans. Er þar um að ræða upprunalegar myndir af nokkrum af þeim bókakápum sem myndlistarmaðurinn Kristján Jóhannsson vann á árunum 1985 til 1992 áður en tölvutæknin kom til sögunnar og leysti penslana af hólmi í þeirri grein. Myndirnar eru unnar með gvasslitum og akrýllitum.
Lesa meira

Fræðsla á Alþjóðlega menntadeginum

Menntaskólinn á Tröllaskaga er UNESCO-skóli og stendur sem slíkur fyrir dagskrá nokkra þeirra daga sem Sameinuðu þjóðirnar tileinka ákveðnum málefnum. Í gær, þann 24. janúar, var Alþjóðlegi menntadagurinn og beindi UNESCO, Mennta-, vísinda- og menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna, kastljósinu að hatursorðræðu en menntun og kennarar hafa lykilhlutverki að gegna í að takast á við hana. Hatursorðræða hefur magnast á undanförnum árum í skjóli samfélagsmiðla og hefur oft og tíðum grafið undan samheldni samfélaga.
Lesa meira