Fréttir

Góðir gestir alla vikuna

Það er gestkvæmt í skólanum þessa vikuna. Í dag komu 11 nemendur af íþróttabraut Verkmenntaskólans á Akureyri í heimsókn. Þeir eru í fjölíþróttaáfanga á þessari önn þar sem markmiðið er að kynnast fjölbreyttum íþróttum. Fyrsta stopp þeirra á ferð sinni frá Akureyri var á Hjalteyri þar sem þau spreyttu sig í hinum glæsilega klifurvegg sem er í gömlu verksmiðjunni þar. Í Ólafsfirði var byrjað á að fara í ýmsa leiki á gönguskíðum undir stjórn Lísebetar Hauksdóttur, íþróttakennara í MTR, og svo kenndi hún nemendum réttu tökin í þessari góðu íþrótt. Að loknu matarhléi var farið í íþróttahúsið í ýmsa leiki og þrautir með nemendum MTR og heimsókninni lauk á afslöppun í sundlauginni. Heimsókn sem þessi hefur verið fastur liður síðustu ár og hafa þær Lísebet og Birna Baldursdóttir, íþróttakennari í VMA, séð um skipulagið.
Lesa meira

Dalvíkingar í heimsókn

Í dag komu nemendur 10. bekkjar Dalvíkurskóla í heimsókn til að kynna sér skólastarfið í MTR. Var þeim skipt í fimm hópa sem fóru á milli stöðva til að fræðast um skólann og leysa ýmis verkefni. Hólmar Hákon Óðinsson, námsráðgjafi, kynnti nemendum skipulag skólans, Sigurður Mar Halldórsson lagði verkefni fyrir nemendur í laserskera skólans og Bergþór Morthens og Sæbjörg Ágústsdóttir tóku á móti nemendum í listastofunni þar sem nemendur teiknuðu hver annan með kolum sem límd voru á prik. Gaman er að geta þess að Bergþór stýrði því verkefni frá vinnustofu sinni í Svíþjóð í gegnum tæki sem hér er kallað nærvera og hægt að keyra um gangana og hafa samskipti við nemendur sem samstarfsfólk. Inga Eiríksdóttir sýndi nemendum nokkra möguleika gervigreindar og notuðu nemendur hana til að gera myndir og lög og fulltrúar nemendaráðs höfðu útbúið spurningar um skólann í Kahoot sem Dalvíkingarnir spreyttu sig á að svara. Tókst heimsóknin hið besta og má með sanni segja að gestirnir hafi lífgað upp á daginn.
Lesa meira

Innritun í fjarnám

Innritun í fjarnám stendur nú yfir fyrir haustönn 2024. Ekki er kennt á sumarönn í skólanum. Vinsamlegast skráið umsóknir í gegnum heimasíðu skólans.
Lesa meira

Gervigreindin áhugavert viðfangsefni

Kennarar og annað starfsfólk Menntaskólans á Tröllaskaga leggur sig fram um að vera framarlega í upplýsingatækni, nú sem endranær. Undanfarið hefur athygli flestra verið á gervigreind þar sem hún verður sífellt meira áberandi og snertir líf okkar á fleiri vegu en flestir gera sér grein fyrir. Í samfélagi sem verður sífellt sjálfvirknivæddara og tæknilegra er mikilvægt að vita hvað gervigreind er og gera sér grein fyrir möguleikum hennar og takmörkunum. Til þess að kafa í þessi mál tekur skólinn m.a. þátt í Evrópusamstarfsverkefni með fyrirtækinu Affekta og ýmsum evrópskum skólum þar af nokkrum hérlendum framhaldsskólum og háskólum. Affekta býður upp á námskeið um gervigreind og fjórðu iðnbyltinguna. Hluti verkefnisins er rannsókn þar sem nemendur kynna sér námsefni Affekta og á sama tíma eru þeir að taka þátt í rannsókn á athygli nemenda á skjánum, svo segja má að nemendur læri um gervigreind á sama tíma og gervigreindin lærir á þá. Þrír starfsmenn fóru einnig á námskeið í Dublin, í febrúar sl., þar sem allt snerist um gervigreind. Þar var fjallað um ýmis álitamál sem tengjast notkun og þróun gervigreindar og þátttakendur fengu að spreyta sig á ýmsum tólum sem byggja á gervigreind og nýta má í kennslu. Var það mjög áhugavert. Gervigreindin er þegar farin að hafa áhrif á nám og kennslu. Á þessari önn hafa kennarar lagt fyrir ýmiskonar verkefni þar sem gervigreind skal notuð. Eru þessi verkefni ætluð til að nemendur átti sig á möguleikum gervigreindarinnar í dag en einnig á vanköntum hennar. Auk þessara verkefna hefur áfangi um samfélagsleg áhrif gervigreindar verið í þróun á önninni. Þar kafa nemendur dýpra í efnið og takast á við siðferðislegar vangaveltur sem upp koma í tengslum við gervigreind og hugsanleg áhrif hennar á samfélagið í framtíðinni.
Lesa meira

Hamingjan í brennidepli

Menntaskólinn á Tröllaskaga er UNESCO-skóli og tekur sem slíkur þátt í nokkrum þeirra daga sem Sameinuðu þjóðirnar tileinka ákveðnum málefnum. Í síðustu viku var m.a.alþjóða hamingjudagurinn en hann er haldinn 20. mars ár hvert. Dagurinn var fyrst haldinn árið 2013 með það að markmiði að vekja athygli á hamingju og vellíðan sem mikilvægu markmiði fyrir einstaklinga og stjórnvöld um heim allan. Ýmsir viðburðir eru skipulagðir þennan dag til að vekja áhuga á mikilvægi hamingjunnar og niðurstaða skýrslu um hamingju þjóða í heiminum “World Happiness Report” er kynnt. Ísland hefur verið meðal efstu þjóða þar síðustu ár og varð í þriðja sæti árið 2023.
Lesa meira

Óveður

Búið er að fella niður skólaakstur frá Siglufirði. Menntaskólinn á Tröllaskaga hefur ákveðið að fella niður staðbundna kennslu fimmtudaginn 21. mars vegna veðurs. Nemendur mæta í fjarkennslustofur samkvæmt stundaskrá
Lesa meira

Gjöfult samstarf við skóla á Spáni

Á dögunum dvaldi Ida Semey, kennari við MTR, í framhaldsskólanum IES Andreu Sempere í Alcoi á Spáni í nokkra daga og fylgdist þar með skólastarfi og kennslu. Skólarnir tveir, MTR og IES Andreu Sempere, eiga margt sameiginlegt eru t.d. báðir Erasmus og UNESCO skólar og var dvöl Idu styrkt af Erasmus+ áætluninni. Þetta er hvorki í fyrsta né síðasta sinn sem skólarnir eiga í samstarfi því vorið 2023 heimsótti starfsfólk MTR spænska skólann í námsferð sinni til Alicante og von er á nokkrum nemendum frá IES Andreu Sempere í heimsókn til Ólafsfjarðar í næsta mánuði. Munu þeir kynnast skólastarfinu í MTR og dvelja hjá nemendum skólans á meðan á heimsókninni stendur. Ida fundaði með þessum nemendum og kennara þeirra og fór yfir dagskrána sem nemendur í umhverfis áfanga MTR hafa útbúið vegna heimsóknarinnar. Áherslan er á að skoða hvernig skólarnir vinna sem UNESCO skólar, hvað nemendur þeirra geta lært hverjir af öðrum og hvernig samstarfsverkefni skólarnir geta unnið saman í framtíðinni. Auk þess munu nemendur kynna sér hvaða menningar- og náttúrustaðir í löndunum tveimur eru á Heimsminjaskrá UNESCO.
Lesa meira

Í fjaðraham á Sjónlistadegi

Sjónlistadagurinn er samnorrænn myndlistardagur barna og ungmenna sem haldin er hátíðlegur ár hvert ellefta miðvikudag ársins. Dagurinn þjónar þeim tilgangi að sýna fjölbreytileika myndmenntarkennslu og vekja athygli á mikilvægi tjáningar barna- og ungmenna og möguleika sjónlistagreina í þeim efnum. Markmiðið er að dagurinn sé haldinn ár hvert á öllum Norðurlöndunum í skólum, söfnum og stofnunum. Öllum sem kenna eða fást við myndlist fyrir börn og ungmenni er boðið að fagna Sjónlistadeginum. Á Íslandi er það Félag íslenskra myndlistarkennara sem heldur utan um framkvæmd verkefnisins og sífellt fleiri skólar hafa bæst í hópinn á síðustu árum. Þema dagsins þetta árið var fjaðrir og þau hughrif sem þær geta vakið. Í MTR voru útprentaðar fjaðrir litaðar og skreyttar með ýmsum hætti, jafnt af nemendum sem kennurum. Fjaðrirnar voru síðan settar saman í krans og mynda nú veggverk í skólanum.
Lesa meira

Ástráður í heimsókn

​Ástráður er kynfræðslufélag sem rekið er af læknanemum við Háskóla Íslands og var stofnað árið 2000. Markmið félagsins er að fræða ungmenni landsins um kynlíf, kynheilbrigði og samskipti. Ár hvert heimsækja fulltrúar þess alla framhaldsskóla landsins og halda fyrirlestra fyrir fyrsta árs nemendur. Í gær komu fulltrúar frá Ástráði í skólann til okkar og áttu gott spjall við þá nýnema sem voru í húsi. Nemendur voru opnir og hispurslausir, spurðu um það sem þeim lá á hjarta og fengu greinargóð svör frá læknanemunum. Félagið heldur einnig úti heimasíðunni astradur.is þar sem ýmis konar fræðsluefni sem tengist málaflokknum er aðgengilegt
Lesa meira

Rafíþróttalið MTR komið í 8 liða úrslit

FRÍS kallast rafíþróttakeppni íslenskra framhaldsskóla og var hún haldin í fyrsta sinn vorið 2021. Í ár taka 13 skólar þátt og er keppt í þremur tölvuleikjum eins og venjan er. Leikirnir að þessu sinni eru Counter-Strike 2, Rocket League og Valorant. Keppnin hófst í lok janúar með deildarkeppni í hverjum leik og að þeim loknum var ljóst hvaða skólar kæmust í 8 liða úrslit. Þær viðureignir sem eftir eru eru í beinni útsendingu á sjónvarpsrásinni Stöð 2 eSport hvert miðvikudagskvöld næstu vikurnar. Fyrsta viðureign í 8 liða úrslitum var 6. mars og okkar menn mæta Fjölbrautaskóla Garðabæjar þann 27. mars. Þá kemur í ljós hvort þeir komast áfram í undanúrslit. Lið MTR skipa Björn Ægir, Hlynur Snær, Ingólfur Gylfi, Jason Karl, Jóhann Auðunsson, Kristján Már, Skarphéðinn Þór, Viktor Smári og Viljar Þór og hafa þeir flestir tekið áfanga í rafíþróttum við skólann undanfarnar annir.
Lesa meira