Lýsandi heiti áfanga: Starfsnám á vinnustað
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: STVS1A05
Lýsing á efni áfangans:
Áfanginn er verklegur og fer námið fram á hinum ýmsu vinnustöðum í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð. Vinnan á
starfsnámsstað er skipulögð í samráði við fulltrúa vinnustaðar. Starfsnámstímabilið stendur yfir alla önnina og er
viðvera nemenda á starfsnámsstað einstaklingsbundin. Umsjónarmaður starfsbrautar hefur umsjón með starfsnáminu en stefnt er að því
að nemendur vinni undir leiðsögn starfsmanns á vinnustað. Í áfanganum er lögð áhersla á stundvísi, vandvirkni,
sjálfstæði, samviskusemi, heiðarleika og að nemendur þekki og fari eftir vinnureglum og helstu öryggisatriðum á vinnustað.
Lokamarkmið áfanga:
- að nemandi geti átt góð samskipti við annað starfsfólk
- að nemandi vinni eftir fyrirmælum
- að nemandi geri sér grein fyrir þeim reglum sem gilda á vinnustað
- að búa nemanda undir þátttöku í atvinnulífinu
- að nemandinn skoði eigin möguleika á starfi á almennum vinnumarkaði
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- hvað það er að vera virkur og ábyrgur borgari í lýðræðislegu samfélagi
- því sem nýtist til undirbúnings fyrir frekara nám
- hvernig nýta beri lærða færni með því að ræða hana við aðra nemendur og bera saman við annað sem honum finnst skipta
máli, t.d. áhugamál.
- hvernig hann miðlar þekkingu sinni með fjölbreyttum og skapandi hætti í samræðu við aðra nemendur með margskonar hætti.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- geta tjáð sig á skýran, ábyrgan og skapandi hátt og vera verklega sjálfbjarga í daglegu lífi
- geta beitt skapandi hugsun í öllu starfi , vinna á sjálfstæðan, ábyrgan og skapandi hátt undir leiðsögn
- hafa aflað sér þjálfunar í þeim aðferðum og verklagi sem nám á vinnustað hans krefst
- geta greint á milli mismunandi aðferða og milli mismunandi þátta í skipulagi verkferla
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- hafa skýra sjálfsmynd og gera sér grein fyrir hvernig hann getur hagnýtt sterkar hliðar sínar á skapandi hátt
- geta átt jákvæð og uppbyggileg samskipti og samstarf við annað fólk
- geta að hagnýtt sér þá hæfni sem hann hefur aflað sér hvort heldur sem er í frekara námi eða í daglegu lífi. Hann
á að geta sýnt fram á almenna siðvitund sína og umburðarlyndi og á að hafa skilning á eigin getu.
- geta miðlað þekkingu sinni og leikni á hagnýtan máta og sýnt þannig sköpunarmátt sinn, frumkvæði og hæfni til að
tjá hugmyndir og skoðanir.
- Meta eigið vinnuframlag
Námsmat:
90% Símat sem byggir á frammistöðu nemandans á starfsnámsstað og á vinnusvæði í skóla. Tekið er mið af eftirfarandi
þáttum: samskiptum, frumkvæði, sjálfstæði, vinnusemi og vandvirkni. Matið gerir fulltrúi starfsnámsstaðar og/eða
starfsnámskennari MTR.
10% Verkefni og/eða dagbók.
Birt með fyrirvara um breytingar