Lýsandi heiti áfanga: Almenn skyndihjálp, 1. hjálp og sálrænn stuðningur
Framhaldsskólaeiningar: 2
Undanfari: Enginn
Lýsing á efni áfangans:
Almenn skyndihjálp er fyrsta aðstoð sem veitt er slösuðu eða bráðveiku fólki. Skyndihjálp kemur ekki í stað viðeigandi
læknishjálpar. Hún er aðeins bráðabirgðahjálp sem veitt er þar til viðeigandi læknishjálp fæst, ef hennar er
þörf, eða þar til bati án læknishjálpar er tryggður. Áverkar eða sjúkleiki kalla þó ekki alltaf á
læknishjálp.
Fyrstu hjálp er ætlað að gera meðal annars björgunarsveitafólk fært um að sinna slösuðu fólki til fjalla og fjarri
læknishjálp. Meðal umfjöllunarefna eru beinbrot, blæðingar, innvortis áverkar, höfuðáverkar og margt fleira.
Sálrænn stuðningur er líkamleg og andleg aðstoð við þá sem orðið hafa fyrir áfalli. Markmiðið er að styðja
einstaklinginn til fyrra jafnvægis og sjálfstæðis og fyrirbyggja alvarleg og langvinn sálræn eftirköst hjá viðkomandi.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- skyndihjálp, 1. hjálp og sálrænum stuðningi
- hvað skiptir mestu máli að gera þegar komið er að slysi
- forgangsröðun aðgerða á vettvangi
- mikilvægi sálræns stuðnings
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- meta áverka til að gera sér grein fyrir því hversu mikið einstaklingur er slasaður
- beita þeim aðferðum sem hann lærði, t.d. endurlífgun
- forgangsraða aðgerðum á slysstað
- veita sálrænan stuðning
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita viðeigandi skyndihjálp eða 1. hjálp
- meta aðstæður á vettvangi slyss
- forgangsraða aðgerðum á vettvangi
- meta áverka einstaklinga
- veita sálrænan stuðning
- beita endurlífgun
Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að
nemendur stundi námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar