Lýsandi heiti áfanga: Minecraft
Framhaldsskólaeiningar: 2
Undanfari: Enginn
Lýsing á efni áfangans:
Minecraft er tölvuleikur og sýndarheimur sem gefur sköpunargleðinni og ímyndunaraflinu lausan tauminn. Á námskeiðinu verður farið yfir öll
helstu atriði er tengjast leiknum. Nemendur læra að setja svokölluð "mod" inn í leikinn sem gerir þeim kleift að sækja viðbætur í
leikinn og laga hann að eigin ímyndunarafli. Þá læra nemendur að setja upp og hýsa sinn eigin vefþjón þar sem þeir geta boðið
vinum sínum að spila. Farið er vandlega í netöryggi varðandi aðgangsstýringar vefþjóna, hvernig á að læsa þeim fyrir
ókunnugum og spila í öruggu umhverfi.
Námskeiðið er bæði fyrir reynda spilara og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í leiknum. Til þess að taka fullan
þátt í námskeiðinu er þó nauðsynlegt að nemendur hafi keypt aðgang að leiknum (https://minecraft.net/) og komi með tölvu sem
hentar til að spila leikinn.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- leiknum minecraft
- breytingum sem notandi getur gert á leiknum
- viðbótum sem henta hverjum og einum
- hvernig maður setur upp vefþjón til eigin nota
- netöryggi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- laga leikinn að eign ímyndunarafli með viðbótum
- setja upp vefþjón til eigin nota
- setja upp aðgangsstýringar á netþjón
- spila leikinn ásamt vinum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- aðlaga leikinn að eigin óskum
- setja upp vefþjón fyrir sjálfan sig og ákveðna vini
- setja upp aðgangstýringar á vefþjóninn
- njóta þess að spila leikinn á öruggum stað með þeim sem maður vill spila við
Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati, nemendur þurfa að standast mætingarkröfur áfangans.
Birt með fyrirvara um breytingar